Lærdóms fyrirtæki

Horfum til Bandaríkjanna

Skoða þarf vel hvað á að leggja áherslu á og gera það í samvinnu við yfirstjórnendur fyrirtækisins. Setja þarf upp þjálfun og fræðslu í samræmi við markmið og stefnu. Einnig að skoða leiðtogaþróun fyrirtækisins.

Skilja þarf vel þarfir starfsmanna ef fókusinn er á starfsmennina. Það mun gera lærdómsferlið ánægjulegra fyrir þá og árangur verður meiri.

Gott er að byrja á því að skapa sameiginlegt rými þar sem bæði fræðslufulltrúar og starfsmenn skiptast á skoðunum.

Setja upp Lærdómsstöð (learning lab) þar sem starfsmenn fá stuðning við lærdóminn til dæmis á vefnum sniðið að einstaklingsbundnum þörfum, til að virkja starfsmennina. Spyrja þá til dæmis “Hvað viltu læra?”


Skilja hvað hvetur þá og hvað hindrar þá í að læra

Örva þátttöku þeirra í því að útbúa námsefni er mjög mikilvægt og þarf að vera stöðugt í deiglunni, einnig til að brjóta niður hindranir.

Gefa starfsmönnum tækifæri til samvinnu við stjórnendur og vinnfélaga til þess að skapa umhverfi sem styður við lærdóm og gera ferlið allt menneskjulegra.

Það er mikilvægt að finna rétta jafnvægið milli vísinda, fókus á nemandann og kennslutækni sem byggist á að framkvæma. Til að bæta árangur og virkni.

Til að nálgast þetta er hægt að nýta videotækni og sviðsmyndatækni auk (félagslegs lærdóms) hópvinna, samræður, auk annarar tækni.

Búa þarf til persónulega umgjörð sem tekur á öllum þáttum sem styðja við fræðsluna sem er aðlagað að einstaklingsbundnum þörfum, til að auka virði vinnunar. (Eco-system). Rafræn kerfi svo sem með þjálfun, nýliðun, sölu og ferlum, þarf að aðlaga að breytingum. Þess vegna þarf fyrirtækið eða stofnunin að hafa áherslu á eftirfarandi við rafræna fræðslu:

Starfsmenn verði að framsæknum nemendum og fyrirtækið eða stofnunin þarf að styðja við lærdóm sem nemandinn leiðir sjálfur, þjálfun og fræðsla þarf að vera meira aðgengileg í fyrirtækjum.

Starfsmennirnir ættu að finnast þeir fá stuðning við rafræna fræðslu frá stjórnendum. Þeir þurfa að fá þjálfun í því að aðlaga sig að rafrænni umbreytingu bæði sem varðar fræðslu og þjálfun og aðra þætti í starfseminni. Þetta þýðir að þjálfa þá í að fylgja eftir rafrænni umbreytingu í rekstri fyrirtækisins. Þeir þurfa að fylgjast með breytingum einsog til dæmis varðandi innlimun og fjölbreytni (inclusion and diversity).

Að læra í flæðinu (flow of word experiences) eru forgangsmál meðal annars í gegnum smáforrit með hnitmiðaðri þekkingu í tækjum sem starfsfólkið notar. Á þennan hátt er hægt að ná meiri skilvirkni varðandi þjálfun og nýliðun, með nákvæmum fyrirmælum, og þekkingargrunni byggðum á spurningum og svörum, ábendingum um tæki og mikilvæg skilaboð.

Það ætti að vera rými fyrir tilraunir með nýjar leiðir í efni og framsetningu kennslunnar. Setja efnið fram á frumlegri máta og endurskoða tilganginn, getur þýtt meiri árangur. Oft er hægt að endurnýta hluta efnisins.

Það sama gildir fyrir mögulegar þjálfunarleiðir einsog læra á staðnum þegar þörfin kemur upp, smáskrefa lærdóm og eða búa til kerfi fyrir þekkingarmiðlun innan fyrirtækisins.

Læra þegar þörfin kemur upp leyfir starfsmönnunum að reyna við áskoranir dagsins og læra líka hvernig á að takast á við þær.

Smá skrefa lærdómur (microlearning) aftur á móti gefur tækifæri á stuttum lærdóms skotum til starfsfólksins, eru bein og tengd stefnu fyrirtækisins. Þetta er auðvelt að muna.

Þekkingarmiðlunar kerfið er innanhússkerfi með alfræðiorðabók um nytsamlegar leiðir til að gera hlutina. Kjörið fyrir leiðbeiningar og með svörum við spurningum.


Starfsmennirnir þurfa að fá rými til að læra


Það að hafa nægilegan tíma og rými eru tvær mikilvægar forsendur til að gera starfsmönnunum kleift að koma nýrri þekkingu í framkvæmd. Þeir þurfa líka að hafa hvata til að taka þátt í innanhúss og utanhúss þjálfun og fræðslu, það þarf að fylgja því vel eftir.

Koma á fyrirtækjamenningu sem styður við lærdóm.

Annar mikilvægur þáttur er að koma á og viðhalda sterkri lærdómsmenningu í fyrirtækinu eða stofnuninni sem hefur góð áhrif á fyrirtækjamenninguna.

Þetta skiptir enn meira máli núna þegar störfin eru að verða meira unnin í fjarvinnu (Google: Fjarvinna er vinnufyrirkomulag þar sem starfsmenn vinna vinnu sína utan vinnustaðar, til dæmis á flakki, á heimaskrifstofu, á starfsstöð langt frá vinnu eða í samnýttu skrifstofurými. Fjarvinna reiðir sig oft á öfluga fjarskiptatækni.) En mikilvægt er að viðhalda tengslum við starfsfélagana.

Rannsóknir sýna að fyrirtæki eða stofnanir sem hafa áherslu á að tengja starfsmenn sína við fyrirtækjamenningu og árangur, eykur frammistöðuna og starfsmannaveltan minnkar. Allar aðgerðir til að efla starfsmennina með því að auka hæfni þeirra, gera þeim kleift að nýta hæfni sína og örva leiðtogahæfni hafa jákvæð áhrif á fyrirtækjamenninguna.

Starfsmannatryggð og nýliðun


Fræðslustjórar hafa lykilhlutverki að gegna varðandi starfsmannatryggð og þátttöku þeirra. Draga þarf úr óþarfa kostnaði við ráðningar og nýliðun.

Fyrirtækið ætti að hafa starfsmennina ánægða og að þeir finnist þeir vera einhvers virði, bjóða þeim tækifæri til að þróast í starfi og gefa þeim tækifæri til að sýna hvað þeir geta. Bjóða þeim aðrar stöður í fyrirtækinu (rotera) það er mikilvægt til að auka þekkingu þeirra og færni, í stað þess að ráða nýja sem þurfa tíma til að aðlagast.


Stöðug uppfærsla á þekkingu og hæfni er líka nauðsynleg (upskilling and reskilling). Annar fókus er að byggja upp tækni sem fær starfsmennina til að spjalla saman um verkefnatengd efni og bjóða aðstoð og endurgjöf til starfsfélagana. Þetta ætti að auka starfsgleði þeirra.


Andleg heilsa og vellíðan í starfi

Eru starfsmennirnir hluti af fyrirtækinu?

Er aðgreining á vinnustaðnum?

Þrífst óréttlæti á vinnustaðnum?

Er áhersla á fjölbreytni?

Er áhersla á innlimun (inclusion)?

Sýna starfsmennirnir frumkvæði?

Fá þeir þá endurgjöf sem þeir þurfa?

Taka starfsmennirnir þátt í breytingum?

Er starfsþróunar og fræðslustefna fyrir hendi?

Eru mælingar á árangri fræðslu og starfsþróunarstefnu?

Samhæfa þarf starfsþróunar og fræðslustefnu við markmið fyrirtækisins til þess að geta gert nauðsynlegar breytingar á næsta ári.

Það þarf að vera sveigjanleiki í tækni og stefnu fyrirtækisins.